Eldhúsið er opið:

 

17:00 til 23:30 sunnudaga til fimmtudaga

 

17:00 til 01:00 föstudaga og laugardaga

 

Um Tapas

Prenta 

 (frá vinstri  Martin Sappia, Nuno Servo, Bento Gerreiro, Bjarki Ómarsson)

 


Tapasbarinn er fullkomin staður til að skella sér á eftir vinnu og fá sér
tapas og rauðvín í góðra vina hópi í skemmtilegri spænskri stemmningu!


Þú getur smakkað um yfir 70 gómsæta tapasrétti, saltfisk, paellu, humar,
lunda og svo miklu miklu fleira.
Lamb í lakkríssósu og beikonvafinn hörpuskel með döðlum er eitthvað sem
allir verða að smakka, og að ógleymdum hvítlauksbökuðum humarhölum sem eru
algert sælgæti!

Til að fá alvöru spænska stemmingu í æð, þarftu að smakka okkar heimsfræga Sangria
með fullt af ávöxtum og okkar eigin leyniblöndu!

Spánverjar búa að ríkri tapas-hefð sem endurspeglar hinn spænska líffstíl.
Að borða Tapas er að borða frjáls frá reglum og stundaskrám. Tapas er
fyrir þá sem vilja njóta lífssins og eiga notalegar stundir með góðum
vinum.
Frábært er fyrir hópa að koma saman og hafa ótrúlega gaman,
flestir hópar fara í óvissuferðina hjá okkur sem inniheldur -  Fordrykk, 7 tapas rétti og
eftirrétt.


Fyrir þá sem eru seint á ferðinni er gott að vita að Tapasbarinn er eini
veitingastaðurinn í Reykjavík sem er með opið eldhús til kl.01.00 um
helgar og 23.30 virka daga.
Láttu það eftir þér, vertu frjáls, njóttu lífsins.

 

Desde 29 de septembre 2000

 

 

 

Tapas barinn - Vesturgötu 3b    l    101 Reykjavík    l    Sími 551 2344    l    tapas@tapas.is    |   Netvistun - Heimasíðugerð, hugbúnaðarlausnir og hönnun